Færsluflokkur: Ljóð
Til sakleysisins
11.11.2008 | 23:31
eins og sólargeisli skín á sumardegi
syngur þrösturinn á grein í maí
mig langar til að tala en ég þegi
því töluð orð þau skemma hvítan snæ
því að ósnert blómin ilma betur
og engin hefur náttúruna bætt
og jafnvel þó að ríki rökkurs vetur
þá roðnar fönn hvar fugli hefur blætt
og þó að fögur kona kveiki bál
og kunni mann að glepja á marga lund
þá finna allir hver í sinni sál
að saklaust barn er kóngur hverja stundLjóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)