Vor og vinstra vor. Haust og hægra haust. Leiðin til Helvítis og Davíðs leið til Helvítis.
16.10.2008 | 00:43
Ég las í dag (já ég kann að lesa.) þessa vísu eftir Davíð nokkurn Oddsson eða hvað hann nú heitir sá ágæti maður.
Kannski er hún ekkert eftir DO því að það stóð í Fréttablaðinu og er þá sennilega lygi eða hvað?
Alla vega vildi blaðamaðurinn að henni yrði svarað og mér datt í hug svar (það er neðri vísan sem er eftir mig, hin er kannski eftir Davíð).
Ríkisstjórn með þrótt og þor,
á þjóðráðunum lumar.
Ef við kjósum vinstra vor,
verður ekkert sumar.
Eitt sólríkt eilíft íhaldsvor,
í auði mátti keppa.
Nú fennir loks í frelsis spor,
en fylgdi sumri kreppa.Hver stelur gulum bíl?
13.10.2008 | 23:32
Muniði eftir brandaranum um Nokia stígvélið, gamla manninn á bekknum og gula Galantinn?
Það var dónalegur brandari.
Jeppa stolið á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Texi vinur minn hefur pottþétt stolið henni.
11.10.2008 | 23:26
Texi þarf einmitt ekki nema eina kúlu, þó hann skjóti alltaf alveg helling.
Það er bara út af hávaðanum
Maðurinn án gullbyssunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þetta er það ömurlegasta gen sem hægt er að hugsa sér.
10.10.2008 | 22:52
Ég mundi ekki fíla svona ömurlegt gen.
Lætur mann vilja hætta eftir örfá glös.
Brýtur áfengi hratt niður.
Þarna er komið verðugt verkefni fyrir Kára.
Finna þetta andstyggðar gen og eyða því.
Skál.
Dani skortir áfengisbremsuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |