Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
Mikið var þetta nú gaman.
30.10.2008 | 19:12
Fylgi VG meira en Sjálfstæðisflokks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Guð blessi Færeyjar.
29.10.2008 | 20:13
Að þeir skuli þora að lána þessum óreiðumönnum í sjálfstæðisflokknum peninga
Geir þakkar Færeyingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tólf gerðir fáanlegar.
29.10.2008 | 19:29
Í fyrstu verður aðeins boðið upp á tólf gerðir en þrjár eru þó í vinnslu til viðbótar en hárflóki sem er nauðsynlegur á einni þeirra hefur reynst þungur í skauti.
Að auki má búast við sirka tuttugu til þrjátíu ,,víkingadúkkum" í næsta mánuði.
Ég spái að þetta verði hörkubissnes hjá mér.
Pantanir skulu fara fram hér eða á vef sannleikans.
Mega selja vúdú-dúkku í líki Sarkozy | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég er ekki viss um að það dugi.
27.10.2008 | 20:55
Þó hún sé eflaust með flott brjóst og flatann maga efast ég um að stripp sé besta leiðinn til að verða varaforseti. Allavega ekki í USA.
En hún gæti prófað á Ítalíu.
Hvað sem öllu líður þá ráðlegg ég íslenskum stjórnmálakonum ekki að prófa þetta bragð.
Sarah Palin kastar fínu fötunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég fór í greiðslustöðvun í gær.
26.10.2008 | 23:50
BaByliss var bara stilltur á 3 mm og svo var látið vaða.
Helvíti gott.
Merlin A/S í greiðslustöðvun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hugsun um tilveru og margbreytileika hlutanna.
17.10.2008 | 23:36
Blá eru fjöllin, bara þó
ef bæjarleið er til þeirra
Í nálægð virðast hnjúkar þeirra hólar smáir
Sönn er fegurð ef sýnist
sannari við bæjardyrnar
og lýti fjarskans breytast í björtustu demantana
Hugsun sem bærist í brjóstinu
bara lýsir upp sálina
þegar nálægðin upplýsir einmannaleikann
Söknuður er ekki umbeðinn
aðeins sálin skilur hann
ef ljósið deyr lifna myrkið og hugsuninVor og vinstra vor. Haust og hægra haust. Leiðin til Helvítis og Davíðs leið til Helvítis.
16.10.2008 | 00:43
Ég las í dag (já ég kann að lesa.) þessa vísu eftir Davíð nokkurn Oddsson eða hvað hann nú heitir sá ágæti maður.
Kannski er hún ekkert eftir DO því að það stóð í Fréttablaðinu og er þá sennilega lygi eða hvað?
Alla vega vildi blaðamaðurinn að henni yrði svarað og mér datt í hug svar (það er neðri vísan sem er eftir mig, hin er kannski eftir Davíð).
Ríkisstjórn með þrótt og þor,
á þjóðráðunum lumar.
Ef við kjósum vinstra vor,
verður ekkert sumar.
Eitt sólríkt eilíft íhaldsvor,
í auði mátti keppa.
Nú fennir loks í frelsis spor,
en fylgdi sumri kreppa.Hver stelur gulum bíl?
13.10.2008 | 23:32
Muniði eftir brandaranum um Nokia stígvélið, gamla manninn á bekknum og gula Galantinn?
Það var dónalegur brandari.
Jeppa stolið á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Texi vinur minn hefur pottþétt stolið henni.
11.10.2008 | 23:26
Texi þarf einmitt ekki nema eina kúlu, þó hann skjóti alltaf alveg helling.
Það er bara út af hávaðanum
Maðurinn án gullbyssunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þetta er það ömurlegasta gen sem hægt er að hugsa sér.
10.10.2008 | 22:52
Ég mundi ekki fíla svona ömurlegt gen.
Lætur mann vilja hætta eftir örfá glös.
Brýtur áfengi hratt niður.
Þarna er komið verðugt verkefni fyrir Kára.
Finna þetta andstyggðar gen og eyða því.
Skál.
Dani skortir áfengisbremsuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |